Sérlausnir fyrir stærri viðburði

Drykkjaþjónusta fyrir ráðstefnur, galakvöld, vörukynningar og fyrirtækjaviðburði. Fagleg þjónusta og gott skipulag tryggja að allt gangi vel frá upphafi til enda.

Glæsimóttakan

200–500 gestir

Glæsileg kokteila- og vínþjónusta sem setur svip á viðburðinn og skapar eftirminnilega upplifun fyrir gesti. Hentar vel fyrir fyrirtækaviðburði, vörukynningar og stærri veislur þar sem markmiðið er að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti.

Lágmarks pöntun

2 drykkir á hvern gest (veljið eina þjónustuleið)

  • 1 kokteill + 1 vín
  • 2 vín
  • 2 kokteilar

Innifalið

  • Hágæða vín og áfengi valið sérstaklega fyrir viðburðinn
  • Glös, ís og allt sem þarf til að tryggja faglega þjónustu
  • 3 klukkustunda fagleg drykkjaþjónusta
  • Sérhæft starfsfólk í kokteil- og vínþjónustu, sniðið að fjölda gesta
  • Sérstakt þjónustuteymi sem sér til þess að allt gangi vel fyrir sig
  • Fjöldi færanlegra barstöðva miðað við stærð og þarfir viðburðarins
  • Afhending, uppsetning og frágangur innan höfuðborgarsvæðisins
  • Viðbótartími: 80.000 kr.

Stórviðburðurinn

500 – 1000 gestir

Öflug drykkjaþjónusta fyrir stærri fyrirtækaviðburði, ráðstefnur og umfangsmiklar veislur. Stórviðburðurinn hentar vel fyrir viðburði þar sem fjöldi gesta kallar á öfluga þjónustu, reynslumikið teymi og gott skipulag.

Lágmarks pöntun

1,5 drykkir á mann
(þjónustufyrirkomulag sniðið að viðburðinum og fjölda gesta)

Innifalið

  • Hágæða áfengi og vín
  • Allur nauðsynlegur búnaður, glös, ís og baraðstaða innifalin
  • 3 klukkustunda drykkjaþjónusta
  • Stærra teymi fagfólks í kokteil- og vínþjónustu
  • Þjónustufólk á staðnum sem sér um að allt gangi vel fyrir sig
  • Barstöðvar staðsettar með flæði og þjónustu í huga
  • Afhending, uppsetning og frágangur innan höfuðborgarsvæðisins
  • Viðbótarklukkustund: 150.000 kr.